Alli og Heimir - ný heimasíða og nýr bíll !

front2v2.jpgX rallý keppnisliðið frumsýndi í morgun nýja bílinn sinn á nýju heimasíðunni sinni www.xrally.is .  Virkilega flott síða og bíllinn ekki síðri ! Smile.

Ökumenn bílsins eru Aðalsteinn og Heimir (bróðir) og það verður virkilega gaman að fylgjast með þessu liði í sumar.  Alli og Heimur byrjuðu að keppa saman í fyrra en þá var Aðalsteinn á sínu fyrsta ári í rallinu, Heimir á hinsvegar orðið langa sögu í rallinu þó ungur sé að árum og verið í fremstu röð síðustu ár og án efa einn besti aðstoðarökumaður landsins !.

Liðstjóri liðsins er enginn annar en Ísak Guðjónsson en hann er margreyndur úr rallinu og á að baki marga titla og sigra í rallakstri.  Aðrir menn í þjónustuliðinu hafa mikla reynslu úr mótorsporti og þá aðallega úr rallinu,  ökumenn bílsins þurfa því ekki að hafa áhyggjur af ástandi bílsins í sumar og keppnisplani því það kunna þessir menn !.

Bíllinn er ekki enn kominn til landsins en von er á honum á næstu dögum. Íslandsmótið byrjar 21 Maí.

Í fréttablaðinu í dag má sjá nánar um þetta lið og viðtal við Aðalstein og endilega að kíkja á þessa flottu síðu www.xrally.is .

Mynd: Bíllinn er ekkert slor !! :-).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

flott grein að vanda hjá þér Dóri....

þetta er virkilega fallegur bíll hjá strákunum, og flott lið í heild sinni....

það hefur ekki verið svona flott team síðan Jópal var á sínum tíma...

nú er bara að sjá hvort ís-aksturinn skili sér í árangri...

ég persónulega held að Alli og Heimir verði skæðir í sumar.. ef þeir lenda ekki í bilunum...(sem allir geta lent í) 

vonandi nær maður að keppa á móti þeim í sumar... það gæti verið gaman...

vantar SMÁ!!!! spons og coara.... veistu um eitthvern..? hehe

petur s petursson (IP-tala skráð) 1.5.2010 kl. 01:04

2 identicon

Flottar greinar hjá þér Dóri, vel gerðar og áhugaverðar. Vonandi verður þú duglegur að henda inn greinum en ég hef því miður ekki tíma í þetta með öllu öðru þannig að ég treysti á þig....

Flottur bíll hjá Alla og Heimi og gaman að sjá hvernig sumarið fer.

 kv. Steini Palli

Steini Pali (IP-tala skráð) 1.5.2010 kl. 15:00

3 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Takk fyrir það Pétur , já get alveg tekið undir það að þetta er með flottari bílum og liði sem hafa sést hér lengi EF þá einhvern tíman. Ég veit ekki um neitt góðan coara á lausu, ég verð á hliðarlínunni í sumar og sé um skrifin .

Takk fyrir það Steini . Ég mun reyna að vera duglegur og henda inn fréttum annað slagið af þessu frábæra sporti okkar . Leiðinlegt að þú skulir ekki hafa tíma í þína síðu því það voru mjög góð skrif hjá þér.

Kveðja / Dóri

Heimir og Halldór Jónssynir, 2.5.2010 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband