18 dagar í mót - Enn fjölgar bílum sem verða í toppbaráttunni

30095_429500036456_666221456_5171979_898119_n.jpgÞað verður heldur betur fróðlegt að fylgjast með toppbaráttunni í rallakstri í sumar því það fjölgar bílum í hverri viku nánast sem ætla að taka þátt Smile.  Þessir bílar eru heldur ekki af verri gerðinni og allir stórglæsilegir !.

Marían Sigurðsson og Jón Þór Jónsson ætla að mæta á MMC Lancer Evo 8 í sumar og það verður gaman að fylgjast með þeim.  Þeir óku MMC Lancer Evo 5 sumarið 2008 með góðum árangri, það er bíllinn sem Hilmar B Þráinsson á í dag.

Það verður gaman að fylgjast með rallinu í sumar og margir góðir ökumenn munu kljást á Íslenskum malarvegum.  Ég óska Marra og Jónsa til hamingju með nýja bílinn sem er stórglæsilegur.

Mynd: Bíllinn hjá Marra og Jónsa á  sýningunni um helgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það lítur út fyrir hörku baráttu í sumar frábært að sjá að rallý flotinn er að stækka og keppendur að sýna mikin metnað í útliti ökutækja. Ég vil óska Alla, Himma og Marra til hamingju með græjurnar, það verður fróðlegt að sjá hversu langt þeir munu ná í sumar. Okkur hlakkar allavega mikið til að slást við alla þessa bíla flóru...við stefnum á að halda merki Subaru á lofti  

ps:  Pétur hættu svo þessu bulli, það vita allir nema þú að þið ætlið að mæta í allar keppnir í sumar

Jónbi (IP-tala skráð) 6.5.2010 kl. 21:20

2 identicon

Já það er rétt Jónbi að þetta verður barátta í sumar . Ég tek undir mér þér að útlitið á bílunum er alltaf að verða flottara og það er ég virkilega sáttur við ! . Svo eru nú fleiri á Subaru en þið ..

Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 8.5.2010 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband