9 dagar - kynning áhöfnum

Ekki eru nemar 9 dagar í að Íslandsmótið í rallakstri byrji og það lýtur út fyrir mjög skemmtilegt sumar. Hægt er að sjá upplýsingar um rallið inná www.bikr.is . Undirritaður verður á hliðarlínunni þetta sumarið og ætlar að reyna að vera öflugur á þessari síðu. 

Ef fólki mislíkar það sem ég set fram á síðunni getur það haft samband við mig dorijons@gmail.com  eða 899-4758, ég get örugglega ekki þóknast öllum en mun reyna.  Ég skrifa það sem mér finnst um rallið ! Smile.

Næstu daga ætla ég kynna þær áhafnir sem verða í toppbaráttunni í sumar.  Ég mun birta tvær kynningar í hverri grein.  Fyrstir sem verða kyntir til leiks eru Íslandsmeistararnir frá því í fyrra, þeir Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson, reyndar var Jón með annan aðstoðarökumann í fyrra.

Þeir félagar munu aka Subaru Imprezu WRX STi með 2,5 mótor. Þeir óku samskonar bíl sumarið 2007 með fínum árangri.  Eðlilega er mikil pressa á þeim  enda báðir með mikla reynslu úr rallinu og þekkja það að vinna og ekki skemmir fyrir að Jón er hraður ökumaður.  Bíllinn þeirra er vel samkeppnishæfur hinum í toppbaráttunni. Það má kannski segja að þeir séu eins og KR í fótboltanum ef þeir verða ekki meistarar þá yrði það skandall Smile , það er samt ekkert unnið fyrir fram og þeir munu örugglega þurfa að hafa fyrir þessu

elvaro 9925Næstir til leiks eru Hilmar B. Þráinsson og Stefán Þór Jónsson en þeir munu aka MMC Lancer Evo 5.  Þessi bíll kom til landsins fyrir sirka 10 árum og hefur nánast tekið þátt í öllum röllum síðan.  Hilmar tók bílinn allan í gegn í vetur og hefur hann aldrei litið eins vel út og hann gerir í dag(bíllinn sko LoL). Þeir félagar urðu Íslandsmeistarar í 2000 flokki í fyrra og lentu í 4 sæti á Íslandsmótinu yfir heildina, svo árangur þeirra í fyrra var mjög góður.  Það verður virkilega gaman að fylgjast með þeim og Hilmar slæst alltaf um sigur í þeim flokkum sem hann keppir í og svo verður einnig í sumar.

Næstu kynningar á áhöfnum koma inn á morgun.

Myndir: Eftir af Jóni og Borgari 2007 á Sauðárkróki og sú neðri er af Hilmari í sprettinum á dögunum við Sundahöfn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

flott grein hjá þér að vanda Dóri.....

petur (IP-tala skráð) 14.5.2010 kl. 14:00

2 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Takk takk . Vonandi hafa menn gaman af..

Heimir og Halldór Jónssynir, 14.5.2010 kl. 20:52

3 identicon

Sæll Dóri,

Takk fyrir flottar greinar, það er alveg ljóst að það er besti fyrir alla að hafa þig á hliðarlínunni því þá fáum við hinir eitthvað að lesa um hvað er að gerast í rallinu, flott hjá þér! Varðandi sumarið þá held ég að menn verði aðeins að róa sig ég og Jónbi erum samtals 80 ára gamlir (já Jónbi er orðinn svo gamall) og því finns mér sanngjarnt að gera minni kröfur til okkar. Við erum á bíl sem er mjög lítið breyttur og ætlum okkur bara að hafa gaman af þessu, tökum kannski á því á einni og einni leið hver veit......... Ég held nú samt að okkar aðal keppinautar verði Pétur Bakari (eða Pétur leikari?) sem að mætir vel undirbúinn til leiks á mun öflugri bíl en við erum á og svo Himmi sem verður með litla frænda minn í hægra sætinu, ég held að Himmi eigi eftir að koma sjálfum sér mest á óvart hvað hann verður hraður. Spurningarmerki er við Alla á EVO X sem hefur allt sem hugurinn girnist fullt af peningum, langöflugasta bílinn, ágætann kóara, flotta viðgerðarkalla og svo sjálfan rally legentið við stjórnvölinn eitthvað sem ekki getur klikkað. Marri og svo Jói verða líka þarna rétt á eftir þannig að spennan verður mikil þetta sumarið.

Sjáumst svo hress í fyrstu keppni

Kv Boggi

Borgar Ólafsson (IP-tala skráð) 15.5.2010 kl. 18:28

4 identicon

Hvar fanstu afsögunar bókina.  Þessi impreza er alveg nóu öflug til að vinna pétur en held samt að þið gerið það ekki :) 

 kv valdi

valdi (IP-tala skráð) 15.5.2010 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband