Rally Reykjavík byrjar með látum

Fyrsti dagur af þrem í Rally Reykjavík lauk í kvöld. Eknar voru 4 sérleiðar og óku39215_10150244823440463_554250462_14209095_2807087_n ökumennirnir 40 km á sérleiðunum.

Daníel og Ásta Sigurðarbörn hafa ekið mjög vel og tóku forustuna strax á fyrstu leið sem lá um Djúpavatn. Þau leiða rallið en eiga víst eftir að fá refsingu fyrir að koma seint inná Kleifarvatn en þau detta ekki neðar en 2 sætið.  Hilmar og Stefán hafa ekið vel en af öruggi og eru þegar þetta er skrifað 32 sekúndum á eftir Daníeli og Ástu.

Jón Bjarni og Borgar sem leiða Íslandsmótið veltu illa á leið 2 um Kleifarvatn og eru fallnir úr leik, sem betur fer slösuðust þeir ekkert en eru töluvert lemstraðir. 

fylkirTvær áhafnir deila 3 til 4 sætinu en það eru Einar og Símon á Audi Quattro og Aðalsteinn og Heimir á MMC Lancer Evo 10. Einar og Símon eru nokkuð óvænt í 3 sætið en þessir piltar byrjuðu í ralli í vor og eru sannarlega menn framtíðarinnar í ralli !.  Mick Jones og Ísak eru í 5 sætið, þeir aka á Ford Escort og hafa ekið vel. Þeir eru á eindrifsbíl og leiða þann flokk með rúmum 20 sekúndum.

Rallið heldur áfram á morgun og aka ökumennirnir t.d. þrisvar um Kaldadal og það mun reyna mikið á menn og bíl.  Upplýsingar stöðuna hér http://tryggvi.org/rallytimes/?RRComp=12&RRAction=4  og þar er að finna einnig sérleiða tímana.

39215_10150244823435463_554250462_14209094_3204429_n

 Jón Bjarni og Borgar á fyrstu leið um Djúpavatni en urðu frá að hverfa eftir veltu á sérleið 2  Myndir  www.geoffmayesmedia.com .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Subaruinn hjá Jónba og Bogga er þessa stundinna í réttingar bekk og er verið að mála alla lausa hluti sem þarf að mála og verða með í fyrramálið

Raggi m (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 02:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband