Íslandsmótið í ralli hálfnað

siggi_bragi_og_isak.jpgMiðsumars rally BÍKR lauk aðfaranótt laugardags en þetta var þriðja umferð Íslandsmótsins. Ennþá eru tvær keppnir eftir og 30 stig í pottinum þar sem síðasta keppni tímabilsins, Rally Reykjavík, gefur tvöfalt vægi.

12 áhafnir mættu til leiks að þessu sinni en 10 áhafnir luku keppni. Skemmst er frá því að segja að Sigurður Bragi og Ísak sigruðu rallið. Í öðru sæti lentu Hilmar Bragi og Dagbjört Rún en þau leiða Íslandsmótið. Guðmundur Snorri og Guðni lentu í þriðja sæti en þetta er fyrsta keppnin sem þeir klára á þessu tímabili. Vel gert hjá þeim félögum. 

Baldur Haralds og Aðalsteinn sigruðu non turbo flokkinn. Annað sætið féll í skaut þeirra Guðmundar og Witeks.  Baldur Hlöðvers og Hjalti Snær gerðu sér lítið fyrir og lentu í þriðja sæti. Baldur ók mjög vel alla keppnina og gaman er að sjá hvað hann bætir sig frá hverju ralli til annars! Einnig fá þeir félagar mikið hrós fyrir mjög snyrtilegan og flottan bíl. Baldur er aðeins á 18. aldurs ári og er sannarlega framtíðar ökumaður.

Þá að keppninni! Fyrsta sérleiðin var ekin um Kaldadal sem er 39 km. Eyjólfur Melsteð og Heimir Snær gerðu sér lítið fyrir og tóku besta tímann 22:28. Þeir félagar óku Jeep Cherokee og voru þeir einir í jeppaflokki að þessu sinni. Annan besta tímann tóku fyrrum Íslandsmeistarnir Sigurður Bragi og Ísak eða 22:33 en þeir félagar aka Lancer Evo 7. Það þarf ekki að fara mörgun orðum um hversu mikið öflugri bíll þeirra er í samanburði við bíl Eyjólfs og Heimis. Hilmar og Dagbjört tóku þriðja besta tíman 23:20 og þau aka eins bíl og títtnefndir Sigurður og Ísak.

Rally jeppiÍ non turbo flokki tóku Baldur Haralds og Aðalsteinn besta tíma í fyrstu ferð um Kaldadal eða 23:43. Bragi og Lejon sem hafa ekið afar vel í sumar sprengdu dekk í þessari ferð og töpuðu fjórum mínútum.

Sérleið 2 var um Surtshelli og tóku Hilmar og Dagbjört besta tíma 4:42. Eyjólfur og Heimir ásamt þeim Sigurði og Ísaki tóku sama tíma 4:46. Þessi leið var 6 km. Bragi og Lejon tóku besta tímann í non turbo eða 4:59.

Sérleið 3 var Surtshellir til baka. Þar náðu Sigurður og Ísak að taka besta tíman 4:31. Hilmar og Dagbjört voru fjórum sek á eftir besta tíma eða 4:35. Jeppa búðingurinn með þá Eyjólf og Heimi innanborðs náðu 4:37 og voru þeir með þriðja besta tímann. Aftur náðu Bragi og Lejon besta tíma í non turbo 4:47.

Sérleið 4 var Kaldidalur til baka. Fyrir þá leið munaði 1 sek á fyrsta og öðru sæti. Sigurður og Ísak með forustu á þá Eyjólf og Heimi. Besta tíma náðu forustusauðurnir með 22:22. Áfram héldu Eyjólfur og Heimir að koma all hressilega á óvart með tíman 22:37 og voru þá orðnir 16 sek á eftir 1. sæti þegar ein leið var eftir. Parið Hilmar og Dagbjört voru með þriðja besta tíma 23:10 sem verður að teljast slakur tími á svona bíl yfir þessa leið. Loksins náðu þeir Guðmundur og Witek besta tíma í non turbo, 23:46, en Guðmundur hefur ekið mjög vel í sumar.

Síðasta og 5. leiðin var um Uxahryggi. Þar réðustu úrslitin og því miður féllu tvær áhafnir úr leik á þeirri leið. Íslandsmeistarinn Hilmar með spússu sína sér við hlið tóku besta tímann 6:17. Vel gert hjá þeim. Sigurður og Ísak voru 8 sek á eftir með 6:25. Þriðja besta tíma náðu Guðmundur og Witek 6:44 og náðu þeir einnig besta tíma í non turbo flokknum.

baldur litli rallyÞær tvær áhafnir sem féllu úr leik voru Bragi og Lejon með brotinn dempara en þeir voru búnir að aka vel og er aðdáunarvert hvað Bragi er grimmur ökumaður. Þetta voru dýr stig fyrir Íslandsmótið sem þeir misstu af í non turbo flokki en þeir koma án efa tvíelfdir inní næsta rall.

Hin áhöfnin voru Eyjólfur og Heimir sem voru í baráttu um sigur allt rallið og voru í 2. sæti þegar þeir féllu úr leik eftir útafakstur með bæði afturdekkin spurningin og komnir á felguna báðum megin. Þeir voru 16 sek á eftir Sigurði og Ísaki fyrir þessa síðustu leið og ætluðu sér að reyna ná 1. sæti. Það á ekki að vera hægt ef maður ber bílana saman! En maður gefur svona ökumönnum STÓRT prik fyrir að reyna og frábær akstur þeirra alla keppnina lauk því miður svona. Svekkjandi fyrir þá, þar sem allt annað hafði gengið upp hjá þeim í keppninni.

Eins og áður hefur fram komið var það Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur sem hélt þessa keppni. Eins og svo oft áður má draga lærdóm af þessu ralli bæði hvað varðar rallið sjálft og aðdraganda þess. Undirrituðum finnst svolítið merkilegt að þetta er annað rallið sem þessi klúbbur heldur á þessu tímabili og bæði röllin hafa endað í Borgarnesi! Annað atriði varðar öruggi keppenda. Eftirfari sem ekur strax á eftir síðasta bíl var alltof seinn í hið minnsta á þremur leiðum. Á Kaldadal fyrstu ferð kom hann um sjö mínútum á eftir síðasta bíl. Þetta er alloft langur tími á milli. Á síðustu ferð um Uxahryggi fór hann af stað þegar það voru liðnar um 5 mínútur frá því að síðasti bíll lagði af stað! Verður það að teljast ámælisvert þar sem um er að ræða mikið öryggisatriði fyrir keppendur verði slys á leiðinni sem er betur fer mjög fátítt hér á landi.

Mjög gaman er að sjá þann fjölda heimsókna sem síðan fær á þessu keppnistímabili! Það er alveg ljóst miðað við fjölda heimsókna að rallið er vinsælt þó það skilir sér því miður einhverja hluta vegna ekki í miklum áhorfendafjölda á keppnunum sjálfum. Haldið áfram að vera duglega að heimasækja síðuna gott fólk Wink!

Lokastaðan í rallinu http://tryggvi.org/rallytimes/?RRComp=28&RRAction=4 .

Myndir: Efsta Sigurður og Ísak - Miðja Eyjólfur og Heimir - Neðsta Baldur og Hjalti. Ljósmyndari Sæmi (Gamli feiti bitri gaurinn) http://www.123.is/mr.boom/pictures/ .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir ábendinguna um eftirfarann, ég mun koma henni á framfæri í skýrslu minni um keppnina.

Það eru nokkrar ástæður fyrir því að ég valdi Borgarnes sem endastað í keppninni núna um helgina. Við upphaf skipulagningar var ákveðið að keyra Uxahryggina sem síðustu leið. Var sú ákvörðun tekin til að koma í veg fyrir umferð keppnisbíla og þjónustubíla í gegnum tjaldsvæðin við Bolabás og Þingvöllum. Hefði það skapað mikla truflun fyrir gesti á þeim svæðum, er slíkt hvorki boðlegt næturgestum né keppendum keppninnar. Frá Uxahryggjum er stutt í Borgarnes. Hluti keppenda er að norðan og ætluðu að keyra beint um nóttina, stór hluti starfsfólks er héðan af svæðinu og því nokkuð miðsvæðis að enda í Borgarnesi. Einnig er aðstaðan hin besta hjá Olís í Borgarnesi en þar er opið allan sólarhringinn með allri þjónustu, menn gátu bæði tekið bensín/olíu jafnt sem fá sér að borða. Sá ég því í ljósi þessarra atriða enga ástæðu til að hafa endamark inni í Reykjavík. Vona ég að þetta útskýri fyrir mönnum val mitt. Með kveðju og þökk, Guðný Guðmarsdóttir keppnisstjóri

Guðný (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 10:21

2 identicon

Þetta var flott og ekkert að því að láta þetta enda í

Hilmar (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 12:14

3 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Sæl Guðný

 Ég kaupi alveg rök þín fyrir því að keppnin var látin enda í Borgarnesi að þessu sinni hvað varðar ónæði sem umferð keppnisbíla og þjónustubíla í gegnum tjaldsvæðin við Bolabás og Þingvelli þar sem rallið var jú um nótt. En það að hluti keppenda eigi heima fyrir norðan og eitthvað af starfsfólki keppninnar eigi heima á svæðinu er að mínu mati engan veginn fullnægjandi rök fyrir því að rallið endi þar. Hvað með okkur sem eigum heima á Suðurlandi og á höfðuborgarsvæðinu? Ég ræddi við nokkra keppendur á föstudeginum og þeir voru ekki sáttir með þessa staðsetningu. En þetta er bara mín/okkar skoðun.

 Ég veit við höfum ekki úr mörgum leiðum að velja en það að BÍKR haldi röllin nánast á sama punktinum á jafn skömmum tíma og raun bar vitni er ekki til þess að skapa góða umfjöllun meðal heimamanna enda hefur það komið á daginn. Ég fer ekki ofan af því að þetta rall hefði átt að vera ekið um Dómadal og Tungná og þar eru margir sammála mér um það! Með því að hafa rallið þar hefuð leiðarnar um Borgarfjörð og nágrenni verið hvíldar og komið í veg fyrir neikvæða umfjöllun um rall meðal íbúa þar sem tvö röll á einum og hálfum máuði er mjög mikið. Það getur leitt til þess að erfiðlega geti gengið að fá samþykki fyrir akstir þarna síðar.

Kveðja/Dóri

Heimir og Halldór Jónssynir, 1.7.2012 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband