5 dagar í Rally Reykjavík

IMG 1179copyShell V-Power Rally Reykjavík 2012 fer fram 6. til 8 september. Það er BÍKR sem stendur að þessari keppni í samstarfi við Skeljung. Upplýsingar um keppnina á www.rallyreykjavik.net .

21 áhöfn eru skráðar til leiks, þar af sex í jeppaflokki sem er flokkur okkar bræðra.  

Undirbúningur hjá okkur hefur gengið mjög vel og fórum við að skoða sérleiðarnar í dag, sem tókst mjög vel og líta leiðarnar mjög vel út. Árni og Gummi tóku rallýbílinn í gegn og aðeins smotterí er eftir að gera áður en keppnin hefst. Mikil tilhlökkun er innan okkar herbúða og reiknum við með skemmtilegri keppni. Rásröð keppninnar kemur á mánudag og verður hún birt hér á síðunni.

Mynd: Upphaf  Rally Reykjavík 2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband