Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Íslandsmeistarinn í ralli keppir í Bresku meistarakeppninni

EVO 7.Danni

Daníel Sigurðsson Íslandsmeistarinn í ralli hefur verið að reyna sig á erlendri grundu upp á síðkastið.Hann hefur verið að keppa í bresku meistarakeppninni.Í síðustu keppni sem fór fram 2 Júní var Ásta systir Danna aðstoðarökumaður hjá honum hún er það líka hér heima hún er aðeins á 17 aldursári,annars hefur Ísak Guðjónsson verið aðstoðarökumaður hjá honum þarna úti í hin skiptin.

Árangur þeirra hefur verið frábær,í síðustu keppni hjá Danna og Ástu gekk mjög vel þrátt fyrir smá óhöpp á fyrstu leið fóru þau útaf og bíllinn fór á hliðina,þau töpuðu eitthvað á þessu,á annari leið var bíllinn alltaf að festast í botni.Þegar 3 leiðar voru búnar voru þau í 19.Sæti í keppninni og 12. Sæti í EVO-keppninni.Þau kláruðu rallið og gott betur en það í 16 sæti yfir heildina og í 8 í EVO-meistarakeppninni.Þetta er að sjálfsögðu frábær árangur en bílarnir í EVO keppninni eru mun dýrari en þeirra og að sjálfsögðu betri búnaður í þeim fyrir vikið,en þau eru nú samt að taka betri tíma heldur en margir þeirra.

Það er alveg ljóst að Danni á heima þarna úti,en næsta keppni fer fram 21 Júlí(sama dag og rallið fyrir norðan).En Danni býst við að keppa í Bretlandi.Þau ætla að reyna að keppa á næsta ári á öllu tímabilinu í Bretlandi,og þá á samkeppnishæfum bíl.En báðir bílarnir sem þau keppa á hér heima og úti eru báðir til sölu,til að fjármagna Mistubishi EVO 9.

 

Ég væri rosalega til í að sjá Danna keppa á EVO 9 við þessa kalla þarna úti og ég veit að árangurinn mundi ekki láta á sér standa.Danni er líka mikil fyrirmynd út á við,og alltaf tilbúin að hjálpa öðrum að koma sér á framfæri.Það mættu margir íþróttamenn taka hann sér til fyrirmyndar.Áfram Danni og co.


Torfæra önnur umferð

Íslandsmótið í torfæru.Önnur umferð á Íslandsmótinu í torfæru fór fram síðasta laugardag á Egilsstöðum það var hart barist.En það var Gunnar Gunnarsson á Trúðnum sem sigraði.Ragnar Róbertsson sigraði í flokki breyttra götubíla og sýndi þar nokkra yfirburði,Bjarki Reynisson varð annar og Vignir Rúnar Vignisson þriðji.


mbl.is Heimamenn í ham í torfærukeppni á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður það Subaru sem vinnur? 21 Júlí

Fjórða rall sumarsins fer fram 21 júlí.Þetta rall fer fram norður í skagafirði en Bílaklúbbur skagafjarðar heldur þessa keppni.Ég fór aftur í tíman og skoðaði hverjir hafa verið að vinna röllin fyrir norðan og Rúnar Jónsson hefur unnið þetta rall 4 sinnum af síðustu 6 skiptum.Hann á 10 Íslandsmeistaratitla sem ökumaður og 3 sem aðstoðarökumaður.Rúnar hefur ekkert keppt síðan 2004.En hann keppti að sjálfsögðu á Subaru frá 1997 til 2004.Hann byrjaði að keppa 1986.Baldur bróðir Rúnars vann fyrir norðan 2002 á Subaru.Frá árinu 2000 hefur Subaru unnið 5 sinnum þarna fyrir norðan.En það eru miklar líkur á að Subaru vinni rallið 21 júlí en það má búast við 5 slíkum bílum.Ég vona að sjálfsögðu að það verði okkar SubaruSmile sem vinni.Hér að neðan koma sigurvegarar frá árinu 2000.

 

2000.Rúnar Jónsson-Jón Ragnarsson.Subaru Impreza

2001.Rúnar Jónsson-Jón Ragnarsson.Subaru Impreza

2002.Baldur Jónsson-Jón Ragnarsson.Subaru Legacy

2003.Rúnar Jónsson-Baldur Jónsson.Subaru Legacy

2004.Rúnar Jónsson-Baldur Jónsson.Subaru Legacy

2005.Ekkert keppt fyrir norðan.

2006.Daníel Sigurðsson og Ásta Sigurðardóttir.Lancer Evo 6.


Schumacher að snúa aftur?

Það væri auðvita frábært fyrir Ferrari ef hann verður tilraunaþór.Þó svo ég hafi aldrei haldið með honum þá væri nú gaman að sjá hann aftur.


mbl.is Schumacher sagður snúa aftur og hafa prufukeyrt á laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamótarallý hjá mér næst

4.umferð Íslandsmótsins í rallakstri fer fram í skagafirði 21 júlí.Þetta verða tímamót fyrir mig.Því ég er að taka þátt í minni 35 keppni á Íslandsmóti.Ég byrjaði að keppa vorið 2001.Árangur minn hefur einnig verið góður tveir Íslandsmeistaratitlar 2001 meistari í eindrifsflokki Aðstoðarökumanna,2004 Íslandsmeistari í 2000 flokki(gamli eindrifsflokkur).Ég hef keppt í öllum röllum síðan 2001 nema fjórum.Í þessum 34 röllum hef ég 24 sinnum komist í endamark en 10 sinnum ekki náð að klára.Það verður mjög gaman að keppa fyrir norðan og baráttan um fyrsta sætið verður hörð en það má búast við 7/9 bílum 4x4 turbo sem koma til með að slást um sigur.

Steini gengin til liðs við Þór

Þorsteinn Gunnlaugsson,eða Steini.Hefur ákveðið að ganga til liðs við nýliða Þórs á Akureyri í körfuboltanum og leika með þeim í úrvalsdeildinni næsta vetur.Þetta er auðvita mikil blóðtaka fyrir okkur í Breiðablik en við ætlum okkar stóra hluti á næsta tímabili og vinna okkur sæti í úrvalsdeild.En það er góð breytt í mínu lið þannig ég vona það besta.Steini átti tvö góð tímabili hjá okkur og var besti maður síðasta tímabils.Hann kemur bara aftur þegar Breiðablik er komið upp næsta vor.En hann gerir bara eins árs samning við norðanmenn.

Á síðasta tímabili skoraði Steini 18,5 stig og tók 16,3 fráköst að meðaltali í leik.Ég þakka Steina fyrir hans framlag í græna búningnum.Og gangi honum sem best fyrir norðan.Það verður gaman að sjá hann aftur í þeim græna tímabilið 2008/2009.


Lewis Hamilton á ráspól í Indianapolis

McLarenfélagarnir verða fremstir á morgun þegar kappaksturinn byrjar í Indianapolis í bandaríkjunum.Ég er mjög sáttur með það,ég hef fylgst með formúlunni síðan 1999 og alltaf verið Mclaren maður að sjálfsögðu.Ef bílarnir verða áfram góðir hjá mínum mönnum eins og þeir hafa verið allt þetta tímabil þá verður þetta auðvelt á morgun.Get ekki séð að Ferrari muni ógna þeim.Það er nú samt gaman að sjá Renault menn koma inn í baráttuna aftur.kovalainen er sjötti á ráslínu og Fisichella tíundi.Útsendingin hefst kl.16.30 á morgun.

Fyrstu tíu á ráslínu.

1.Hamilton

2.Alonso

3.Massa

4.Räikkönen

5.Heidfeld

6.Kovalainen

7.Vettel

8.Trulli

9.Webber

10.Fisichella.


Mínir menn mæta sterkir til leiks

Mínir menn í körfuboltanum(Breiðablik) mæta gríðarlega sterkir til leiks í haust þegar tímabilið byrjar.Við rétt misstum af úrvalsdeildarsæti í vor eftir úrslitaleiki við Stjörnuna.En það er alveg greinilegt það á að fara beint upp á næsta tímabili.Við höfum fengið til okkar besta þjálfara Íslands Einar Árna en hann gerði Njarðvík að Íslandsmeisturum 2006 og liðið var deildarmeistari undir hans stjórn í vor.En tapaði fyrir KR í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.Svo var Einar valin besti þjálfarinn í Iceland Express deildinni á lokahófi KKÍ sem fór fram 28 apríl.Einnig höfum við verið að bæta við okkar leikmönnum Halldór Halldórsson kom frá Keflavík hann kemur til með að styrkja Blikaliðið mikið,Svo hefur Bakvörðurinn knái Rúnar Ingi Erlingsson bæst við okkar sterka leikmannahóp Rúnar hefur allan sinn feril leikið með Njarðvík og hefur undanfarið verið að skipa sér sess í meistaraflokki félagsins.Svo er bara að vona það besta því það er löngu orðið tímabært að Breiðablik verði í toppbaráttu í Íslenskum körfubolta.

Mjög góð byrjun á tímabilinu

Pétur og Heimir(bróðir) hafa byrjað tímabilið í rallinu ótrúlega vel.Þegar þrjú röll eru búinn hafa þeir unnið 1600 flokkinn í öll skiptin og 2000 flokkinn tvisvar.En ekki nóg með það þeir hafa unnið 26 sérleiðar af 32 sem búnar eru í sinum flokki (1600),en það eru á bilinu 6/8 bílar í flokknum.Það er alveg greinlegt að þeir eru í algjörum sérflokki í sínum flokki,en Pétur og Heimir byrjuðu að keppa saman í vor.Fjórða rall sumarsins fer fram í skagafirði 21 júlí en þeir gætu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þar,Þó svo það séu tvö mót eftir það rall,það yrði rosalegt ef þeim tækist þetta svona snemma á tímabilinu.


NBA San Antonio komið í 3-0

San Antonio Spurs komið í 3-0 á móti  Cleveland Cavaliers.Leikurinn var mjög spennandi í nótt og úrslit réðust ekki fyrr en í lokleiks,lokatölur í leiknum 75-72.Tony Parker var stigahæstur í liði San Antonio með 17 stig hjá Cleveland var LeBron James með 25 stig 8 fráköst.Nú er bara að vona að Cleveland taki næsta leik því það yrði leiðinlegt fyrir okkur körfuboltaáhugafólk ef þetta fer 4-0 fyrir San Antonio.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband