Erum í 5. sæti eftir fyrsta dag

016Shell V-Power Rally Reykjavík hófst í dag með sex sérleiðum. Skemmst er frá því að segja að við bræður höfum farið vel af stað og erum í 5. sæti og í forustu í jeppaflokki. Erum rúmum tveim mínútum á eftir 1. sæti.

Við höfum ekið af öruggi og bíllinn er í toppstandi og það er þeim Árna, Gumma og Steinari að þakka, þvílíkir snillingar þessi menn! Á morgun byrjar rallið af alvöru með mörgum erfiðum og skemmtilegum leiðum.

Forustuna í rallinu hefur Hilmar Bragi og Dagbjört. Þar eftir eru Marin og Ísak 1,15 mín á eftir. Guðmundur og Ólafur Þór eru í 3. sæti 19 sekúndum á eftir 2. sæti, Guðmundur og Ólafur leiða jafnframt non turbo flokkinn.

Stöðuna í rallinu er að finna inná  www.tryggvi.org/rallytimes og upplýsngar um rallið er inna www.rallyreykjavik.net .

Mynd: Af bíl okkar í viðgerðahléinu í kvöld


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband