Nýr bíll og ný heimasíða

Evo-Jón og BorgarJón Bjarni og Borgar sem lentu í öðru sæti á Íslandsmótinu í rallakstri í fyrra hafa fest kaup á nýrri bifreið en þeir óku Subaru Imprezu í fyrra,nýji bílinn er af gerðin Mitsubishi Lancer EVO 7 og er smíðaður í Finnlandi þetta er mjög öflugur bíll og nokkuð ljóst að þeir félagar munu slást um Íslandmeistaratitilinn í sumar ásamt nokkrum öðrum.

Þeir félagar hafa einnig opnað glæsilega heimasíðu www.evorally.com flott framtak hjá þeim,það er gaman að sjá að menn eru farnir að leggja mikinn metnað í rallið hér heima og bílarnir orðnir öflugir og glæsilegir,einnig hafa nokkrir opnað heimasíður eða blogg.Ég óska Jónba og Bogga til hamingju með nýju græjuna og síðuna.

Daníel og Ísak kepptu í sunseeker rallinu í Bretlandi um helgina,þeir urðu frá að hverfa með bilaða kúplingu eftir frábæran akstur,ég mun birta grein um rallið hér á síðunni í kvöld.

Mynd:  www.evorally.com .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

flott græja. mér skilst að þessi sé nokkuð fljótari en súbarú

Árni (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 17:13

2 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Já ég býst við því að þessi sé fljótari,Evo bílarnir hafa verið að koma betur út en Subaru allavega hérna á Íslandi og víða annarstaðar það er bara staðreynd.

Heimir og Halldór Jónssynir, 25.2.2008 kl. 00:44

3 identicon

Takk fyrir þetta Dóri minn, þú ert nú búinn að vera manna duglegastur að setja fréttir á netið. Nýji bíllinn á að vera fljótari en Subaruinn sem við vorum á í fyrra en stóra spurningin er hvort að við verðum fljótari á þessum bíl? Keppnin verður mjög hörð og ekkert auðvelt að ná að sigra, Siggi Bragi, Óskar Sól, Jói V og Pétur bakari verða allir mjög fljótir svo er spurning hvort að Danni mætir í einhverjar keppnir, en við gerum okkar besta.

 

Borgar Ólafsson (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 11:51

4 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Takk fyrir það Boggi.Já þetta verður rosalega skemmtilegt rallýsumar og baráttan verður hörð.

Heimir og Halldór Jónssynir, 26.2.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband