Ný græja á leið til landsins

Nýji bíllinnÉg og Eyjó höfum fest kaup á nýrri bifreið og er nýi bíllinn af gerðin Subaru Impreza STi N14 og er með eins og maður segir topp Grúppu N bíll en það er gamli bíllinn ekki!.

Gamli bíllin er settur upp í þann nýja auk nokkra 5.þús kalla Smile, vonast er til þess að bíllinn verði komin í lok þessa mánaðar en eins og allir vita býr Eyjó og í Noregi og við munum ekki ná að prófa bílinn mikið fyrir fyrsta rall.

Við höfum fengið til liðs við okkur öflugt fyrirtæki sem mun sjá um rekstur bílsins í sumar en það verður kynnt nánar á blaðamannafundi í næstu.

Fleiri myndir af bílnum koma inn í kvöld..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Vilberg Ómarsson

Já fyrsti apríl til þín líka

 Þú klikkar á þessari línu:

"en það verður kynnt nánar á blaðamannafundi í næstu..."

Allt hitt var trúlegt

Halldór Vilberg Ómarsson, 1.4.2009 kl. 10:11

2 identicon

Það var bara gengið frá þessu í fyrradag og Eyjó Býr í Noregi og hoppar ekki til Íslands bara svona 1.2 og 3, það er betra að hafa hann á fundinum  því hann er nú ökumaður þessa bíls..

Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 11:19

3 identicon

Aha.. íslenskir blaðamenn hafa nefnilega svo mikinn áhuga á ralli :D

Sigurður Rúnar Rúnarsson (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 15:11

4 Smámynd: Elvar Örn Reynisson

Tja ég er nú "blaðamaður" endilega láttu mig vita hvar ég á að mæta

Elvar Örn Reynisson, 1.4.2009 kl. 18:36

5 identicon

Siggi þú verður að koma sjálfum þér á framfæri, blaðamenn koma ekki hlaupandi til þín..

EN þetta var að sjálfsögðu Aprílgabb með bílinn og við erum helur ekki að fara að keppa í sumar..

Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband