Páll og Aðalsteinn sigruðu

elvaro 8076Páll og Aðalsteinn sigruðu rallið sem var rétt í þessu að ljúka og er þetta frábært hjá þeim félögum. 7 sérleiðar voru eknar í rallinu í kvöld og sigruðu þeir félagar allar, svo yfirburðir þeirra hafa verið nokkrir, til hamingju með góðan sigur drengir.

Jóhannes og Björgvin gerðu vel og náðu 2.sæti og er þetta besti árangur þeirra á þessari bifreið, þeir voru rúmum fjórum mínútum á eftir fyrsta.

Guðmundur Orri og Hörður óku mjög vel og enduðu í 3.sæti og þeir sigruðu jafnframt jeppaflokkinn og eru komnir í góða stöðu í Íslandsmótinu í jeppa.

elvaro 8008Hilmar Bragi og Stefán Þór unnu 2000 flokkinn og enduðu í 4.sæti, þessi úrslit þýða það að þeir eru orðnir Íslandsmeistarar í 2000 flokki, frábær árangur hjá þeim og verður gaman að sjá Himmi aka öflugri bíl á næsta ári. Til hamingju með titilinn strákar!. Feðgarnir Hlöðver og Baldur lentu í 2.sæti í 2000 flokki, þeir enduðu einni mínútu á eftir Himma og Stefáni, en Hlölli og Baldur töpuðu miklum tíma á fyrstu og annarri leið við það að fara útaf.

Aðalsteinn og Heimir fóru útaf á fyrstu leið og töpuðu 10 mínútum. Þeir óku mjög vel eftir þetta og náðu fórum sinnum 2. besta tíma, flott hjá þeim fyrir utan það að fara útaf á fyrstu leið.

Lokaúrslit hér http://tryggvi.org/rallytimes/?RRComp=6&RRAction=9 .

Svo er síðasta rall ársins á morgun og hefst það kl. 10:00 í fyrramálið, það er hægt að fylgjast með live á morgun hér http://tryggvi.org/rallytimes/?RRComp=7&RRAction=9 .

 

 

elvaro 8104

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TEAM SEASTONE

Sæll Dóri skemmtileg grein að vanda,Mazdan ógurlega náði þeim merka áfanga í gær að klára rall! gaman af því, en ekki vildi hún þóknast húsbónda sínum í morgun og gaf upp öndina,þetta er sennilega mest dregni rallbíll sögunnar hehe.mikill slagur í gangi milli Palla og Jóa spennandi..kv Gunni

TEAM SEASTONE, 5.9.2009 kl. 13:22

2 Smámynd: Elvar Örn Reynisson

Flottur

Elvar Örn Reynisson, 6.9.2009 kl. 16:57

3 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Takk strákar . maður reyndir eins og maður getur .

Heimir og Halldór Jónssynir, 6.9.2009 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband