Þakkir til stjórnar BÍKR

BIKR-logo[1]Þeir sem hafa fengið lítið hrós á ralltímabilinu sem er nú ný lokið er stjórn BÍKR(Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur). Þessir drengir hafa unnið frábært starf á þessu ári og eiga miklar þakkir skilið!. BÍKR( www.bikr.is) hélt 5 keppnir af 6 á Íslandsmótinu og fórst það afar vel af hendi.

Klúbburinn hélt einnig leikdag upp á rallycrossbraut en þeim degi var hent upp á einum sólarhring, því AÍFS frestaði öðru rallinu rúmum tveim sólarhringjum fyrir ræsingu. Það var grillað og allir áttu glaðan dag upp á braut á þessum leikdegi Smile.

Svo sá BÍKR um að skipuleggja rallið á Lex-Games, það var mjög góð auglýsing fyrir sportið, þetta var vel skipulagt af klúbbnum og allt gekk hratt og vel fyrir sig! Smile. Einnig var grillað ofan í gesti og gangandi í keppnisskoðun fyrir Rallý Reykjavík um miðjan Ágúst.

Svo gerði BÍKR blað sem var dreift með fréttablaðinu, þetta blað kom út í vikunni sem Rallý Reykjavík var haldið. Blaðið var fjórar blaðssíður um rallý. Elvar átti mikinn þátt í hversu blaði var flott, vonandi kemur meira svona frá klúbbnum og þá í samstarfi við Elvar Happy.

Þetta var í stuttu máli hvað stjórn BÍKR hefur gert fyrir OKKUR á þessu keppnistímabili. Svo má auðvita ekki gleima öllum þeim starfsmönnum sem hafa komið að öllum keppnunum EN án þeirra væri ekkert rallý!, allt þetta fólk á mikið hrós skilið!.

Undirritaður vonar innilega að stjórn BÍKR haldi áfram og geri jafn góða hluti næstu árin eins og þeir gerðu á þessu ári!

Rallý kveðja/ Dóri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott samantekt hjá þér Dóri

Eitt sem þú gleymir að telja upp er hvað þú hefur verið duglegur og lagt mikin metnað í síðuna hjá þér , þú átt hrós skilið fyrir að nenna öllum þessum skrifum

Frábært framtak hjá þér í sumar þú færð hrós og klapp á bakið frá mér og mínum

K.V Hlöðver Baldursson

Hlöðver Baldursson (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 09:35

2 identicon

Takk fyrir það Hlölli .

Já ég sé það núna, gleymdi mér alveg . Gaman að fá svona hrós, takk enn og aftur ..

Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 07:56

3 Smámynd: Elvar Örn Reynisson

Dóri fær stórt klapp á bakið frá mér fyrir greinarskrif og líka fyrir að þykja myndirnar mínar boðlegar með greinunum sínum. :)

Elvar Örn Reynisson, 12.9.2009 kl. 22:23

4 identicon

Takk Elvar . Það var nú bara lítið!. Þó færð líka stórt klapp á bakið frá mér, fyrir að sinni þessi eins VEL og þú gerir .

Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 14.9.2009 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband