Breska meistarakeppnin um helgina
17.10.2007 | 23:56
Systkynin Daníel og Ásta Sigurðarbörn Íslandsmeistarar í ralli keppa í Bresku meistarakeppninni á laugardag.Þau hafa tekið þátt í nokkrum mótum á þessu ári í Bretlandi með fínum árangri.Þetta er síðasta mótið á þessu ári hjá þeim.Bíllinn sem þau keppa á úti er Mitsubishi Lancer EVO 7.Upplýsingar um rallið á laugardag má finna hér www.bulldog-rally.co.uk einnig verður hægt að fylgjast með gangi mála hjá þeim inná þeirra heimasíðu www.hipporace.blog.is .
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eyjólfur í hvaða heimi ertu
17.10.2007 | 21:12
Þessi úrslit í kvöld eru lélegustu úrslit Íslands í MÖRG ár.Ég veit ekki í hvaða heimi Eyjólfur er,hann segist ekki vera kominn í þrot með liðið ég held að hann sé ekki alveg með,fá á sig 7.mörk í tveimur leikjum á móti þjóðum sem Ísland á að vinna nokkuð auðveldlega,þetta er algjör skandall.
Mér fannst spurningar hjá Gumma Ben á sýn eftir leik mjög góðar,en svörin sem komu frá landsliðsþjálfaranum og fyrirliðanum voru hreint út sagt grín,engin almennileg svör komu frá þeim töluðu bara í hringi.Lið sem mætir vel undirbúið eins og Eyjólfur sagði að Ísland hafi gert,tapar ekki 3-0 fyrir Liechtenstein.Ég persónulega held að sé komið að því að ráða erlendan þjálfara fyrir þetta lið,það sakar ekki að reyna.Ísland fer ekki mikið neðar en þetta,11 leikir í riðlinum 2 unnir,2 jafntefli og 7 töp,markatalan 10-24,ég er svo pirraður að ég nenni ekki að skrifa meira.Áfram Ísland.
![]() |
Eyjólfur: Ég er ekki kominn í þrot með þetta lið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Óðinn Ásgeirsson bestur í 1.umferð
17.10.2007 | 09:58
Óðinn Ásgeirsson úr Þór Akureyri var með hæsta framlag í fyrstu umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta.
Framlagsjafnan er svona.Stig+Fráköst+Stoðsendingar+Stolnir +Varin) -((Skot reynd-Skotum hitt) + (Víti reynd - Vítum hitt)+ Tapaðir boltar)).Þetta er sama reikniformúla og er notuð í NBA og WNBA.Það er alltaf gaman að skoða þessa tölfræði í körfunni.Hér er hægt að skoða betur www.kki.is/greinar.asp?adgerd=ein&id=368 þá/þær sem stóðu sig best í fyrstu umferð Iceland Express deildar karla og kvenna.
Mynd www.123.is/logan .Óðinn að taka vítaskot í leik Þórs og ÍR sem Þór vann 87-85.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)