Fleiri myndir

Það eru komnar fleiri myndir af okkur úr Alþjóðarallinu í albúmið. það var Gulli Briem sem tók þessar snilldar myndir.

Skógshraun 2008

Djúpavatn - Eyjó & Dóri - 2008

Meira hér  http://ehrally.blog.is/album/altjodarallid_2008_gulli_briem .


Latvala í forustu

Latvala - 2008Finninn Jari-Matti Latvala er komin með forustu fyrir síðasta daginn í heimsmeistarakeppninni í ralli,þetta er 11 mótið af 15 á þessu tímabili og rallið um helgina fer fram í Nýja sjálandi.

Liðsfélagi Latvala og landi hans Mikko Hirvonen var í forustu eftir 1.dag en hann er nú  9 sekúndum á eftir landa sínum,þeir aka báðir Ford Focus.

Það er ekkert voðalega gott að ræsa fyrstur inn á leiðarnar því mölin er mjög laus á vegunum og þetta vissi heimsmeistarinn Sebastien Loeb og gaf hann því örlítið eftir á síðustu sérleiðinni í nótt því þá var hann komin með forustu og ræsir hann því þriðji í kvöld og nótt þegar síðast dagurinn verður keyrður,Loeb er 13 sekúndum á eftir Latvala.

Í 4.sæti er spánverjinn ungi Dani Sordo en hann er ekki nema 15 sekúndum á eftir 1.sæti,það er því greinilegt að spennan er mikil um fyrstu 4.sætin á lokadeginum.

Loeb og Hirvonen eru í mikill baráttu um heimsmeistaratitilinn og er Loeb með 4.stiga forskot á Finnan en þeir tveir skera sig úr í baráttunni um titilinn.


Bloggfærslur 30. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband