Fyrsta rallkeppni ársins fer fram á morgun
6.3.2010 | 16:20
Fyrsta rall ársins fer fram á morgun og eru 16. áhafnir skráðar til leiks en þetta er liður í bikarmóti BÍKR og er þetta önnur umferð en fyrsta var ekin í haust.
Þetta er góð upphitun fyrir ökumenn og bíla fyrir Íslandsmótið sem hefst um miðjan Maí.
Keppnin á morgun fer fram upp í Gufunesi og eknar verða 6 umferðir með viðsnúningi 3 í hvora átt. Fyrsti bíll er ræstur kl: 11:00 inná fyrstu leið en alls munu ökumennirnir aka 28 km.
Nánari upplýsingar um keppnina hér http://www.lia.is/spjall/viewtopic.php?t=1425 og hér http://www.bikr.is .
Mynd: Páll Harðarson og Aðalsteinn Símonarson leiða bikarmót BÍKR.
Góða skemmtun og ÁFRAM rallý!!.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.