Þetta fer að bresta á!
10.5.2012 | 21:10
Jæja þetta fer að bresta á og ekki nema tæp vika í ræsingu í fyrstu umferðina af fimm á Íslandsmótinu í rallakstri. Það er BÍKR (www.bikr.is ) sem hefur veg og vanda að þessari keppni.
17 áhafnir eru skráðar til leiks þar af 8 non turbo bílar og verður gríðarlega gaman að fylgjast með þeirri baráttu í sumar.
Samt sem áður sakna maður bílanna í stóra flokknum, grubbu N, en það lítur út fyrir að einungis verði fimm áhafnir í sumar. Skora hér með á þá menn sem eiga nánast tilbúna bíla að skella sér í slaginn!
Um helgina fara áhafnirnar að skoða sérleiðarnar og búa til leiðarlýsingu sem ökmennirnar aka svo eftir. Flestar sérleiðarnar í rallinu verða í kringum Borgarfjörð. Nánari leiðarlýsing kemur í næstu viku.
Mynd: Bíll þeirra Guðmundar og Guðna sem lítur vægast sagt mjög vel út og hrós til þeirra fyrir fallegan bíl. Þeir félagar verða í toppbaráttunni í sumar. Guðmundur hefur töluverða reynslu sem ökumaður en Guðni sem er aðstoðarökumaður hans er nýr í þessu sporti.
Taka svo þátt í könnunni hér til vinstri á síðunni.
Athugasemdir
Flott skrif hjá þér Dóri.
Guðni er reyndar ekki alveg nýr í þessu sporti, hann keppti eitthvað með Magnúsi Þórðar árið 2008, einnig í sprett í fyrra með Ívari Smárasyni.
Svo hefur hann verið grimmur í rallycrossinu.
Verður skemmtilegt rall.
Óli Þór (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 10:51
Þakka þér Óli. Já okei ég vissi það ekki ;).
Jamm þetta verður vonandi bara gaman :).
Heimir og Halldór Jónssynir, 12.5.2012 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.