Góður sigur Hirvonen
14.6.2009 | 22:55
Finninn Mikko Hirvonen sigraði Akrapólisrallið sem lauk í morgun og er hann nú ekki nema 7.stigum á eftir fimmföldum heimsmeistara Sebastien Loeb í stigamótinu en sá síðari nefndi krassaði bíl sínum á öðrum degi og fór nokkra hringi en sem betur fer sluppu þeir ómeiddir en þetta var stórt krass!. Hirvonen leiddi rallið frá fyrsta degi og til að mynda var hann komin með góða forustu fyrir síðasta dag og gat því keyrt varnarakstur sem sást líka á tímunum því besti tími hans í dag var 7.besti.
Frakkinn Sebastien Ogier lendi í örðu sæti en frakkinn ungi ók vel í þessu ralli og gaman verður að sjá hvað hann gerir í næstu keppnum
Jari-Matti Latvala liðsfélagi og landi Hirvonen tók þriðja sætið og það var mjög vel gert hjá Latvala því hann tapaði rúmum 3.mínútum á degi eitt við það að keyra útaf og er Latvala nú komin framfyrir Solberg bræðuna í stigmótinu.
Það eru enn fimm mót eftir og fer næsta keppni fram eftir tvær vikur í Póllandi.
Lokastaðan í Grikklandi (topp 8)
1 | HIRVONEN Mikko | 0.0 | |
2 | OGIER Sebastien | +1:12.9 | |
3 | LATVALA Jari | +1:45.0 | |
4 | VILLAGRA Federico | +3:48.3 | |
5 | RAUTENBACH Conrad | +3:59.8 | |
6 | AL QASSIMI Khalid | +7:04.3 | |
7 | OSTBERG Mads | +12:24.9 | |
8 | ATHANASSOULAS Lambros | +12:47.6 | |
Mynd: Hirvonen fagnar sigrinum í dag.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.