Hirvonen sigraði á heimavelli
3.8.2009 | 11:50
Finninn Mikko Hirvonen sigraði Finnska rallið sem lauk í gær. Hirvonen var með forustu allt rallið en það var þó naumt allan tíman, þetta er í fyrsta skipti sem hann fangar sigri á heimavelli, hann var á verðlaunapalli 2007, 2008 og núna tókst honum að sigra eins og áður sagði. Finninn hefur nú unnið þrjú mót í röð og er til alls líklegur með að hampa titlinum í fyrsta sinn.
Heimsmeistari síðustu fimm ára, Frakkinn Sebastien Loeb lenti í örðu sæti í þessu móti, hann er nú þremur stigum á eftir Hirvonen í stigakeppninni. Loeb hefur ekki náð að sigra síðustu fjögur mót og það gæt orðið Frakkanum dýrt þegar upp er staðið.
Jari-Matti Latvala, sem er landi og liðsfélagi Hirvonens varð í þriðja sæti. Latvala hefur ollið töluverður vonbrigðum á þessu tímabili en núna stóð hann sig fínt, kannski ekki annað hægt þar sem hann var á heimavelli.
Af 23.sérleiðum sigraði Hirvonen 10.leiðar, Loeb 8 og Latval 5.
Efstu átta í rallinu
1. Hirvonen/J Lehtinen FIN Ford Focus RS 2:50:40.9
2. Loeb/D Elena FRA Citroen C4 2:51:06.0
3. J-M Latvala/M Anttila FIN Ford Focus RS 2:51:30.8
4. Sordo/M Marti ESP Citroen C4 2:51:47.0
5. Rantanen/M Lukka FIN Ford Focus RS 2:54:59.1
6. Ogier/J Ingrassia FRA Citroen C4 2:54:59.4
7. Ketomaa/M Stenberg FIN Subaru Impr 2:55:48.4
8. Wilson/S Martin GBR Ford Focus RS 2:57:4.5
Staða til heimsmeistara átta efstu
1st | Mikko Hirvonen | 6 | 8 | 8 | 8 | 0 | 8 | 10 | 10 | 10 | - | - | - | 68 |
2nd | Sébastien Loeb | 10 | 10 | 10 | 10 | 10 | 5 | 0 | 2 | 8 | - | - | - | 65 |
3rd | Daniel Sordo | 8 | 4 | 5 | 6 | 8 | 0 | 0 | 8 | 5 | - | - | - | 44 |
4th | Jari-Matti Latvala | 0 | 6 | 0 | 0 | 3 | 10 | 6 | 0 | 6 | - | - | - | 31 |
5th | Henning Solberg | 5 | 5 | 0 | 4 | 6 | 1 | 0 | 6 | 0 | - | - | - | 27 |
6th | Petter Solberg | - | 3 | 6 | 5 | 0 | 6 | 0 | 5 | 0 | - | - | - | 25 |
7th | Matthew Wilson | 2 | 2 | 4 | 0 | 4 | 3 | 0 | 4 | 1 | - | - | - | 20 |
8th | Sébastien Ogier | 3 | 0 | 0 | 0 | 2 | 0 | 8 | 0 | 3 | - | - | - | 16 |
Mynd: Hirvonen.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.