Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2014
Degi tvö lokið
29.8.2014 | 23:50
Dagur tvö að kveldi kominn. Staðan eftir daginn er þannig að strákarnir leiða jeppaflokkinn með rúmlega tveggja og hálfs mínútu forskoti á næsta bíl og eru í 11. sæti yfir heildina.
Dagurinn tók töluvert á þar sem þeir lentu í að sprengja tvö dekk og keyrðu síðan bremsulausir nánast allan Dómadal, rétt um 23 kílómetra. En þrátt fyrir allt skiluðu þeir sér í park ferme í kvöld sem skiptir náttúrlega mestu.
Dómnefnd hefur ekki ennþá tekið ákvörðun um hvort að leiðin um Áfangagil gildi þar sem nokkrar áhafnir óku vitlausa leið og hefur leiðin verið kærð og bíður úrskurðar. Fari svo að leiðin verði tekin gild munu strákarnir mögulega fara upp um tvð til þrjú sæti þar sem að þeir voru með mjög góðan tíma á þeirri leið og fóru rétta leið Það skýrist vonandi strax í fyrramálið.
Ennþá er samt heill dagur eftir og margt getur gerst þar sem enn eru eftir sjö sérleiðar og þeirra á meðal erfið og skemmtileg leið um Kaldadal.
Yfir og út
PACTA Rallyteam
Mynd: Halldór Björnsson tekið á Dómadal í dag.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagur eitt búin
28.8.2014 | 23:58
Þá er degi eitt af þremur lokið í Rally Reykjavík. Búið að aka fjórar af tuttugu sérleiðum. Eftir daginn eru strákarnir í 10. sæti í heildarkeppninni en 1. sæti í jeppaflokki. Það verður að teljast gott enda eru þeir að venja sig við ýmsar breytingar sem búið er að gera á bílnum frá því í fyrra.
Á morgun verður byrjað að aka Hekluna en allar nema tvær af sérleiðum dags tvö verða eknar á Suðurlandinu. Dagurinn verður strembinn en skemmtilegur
Bíllinn er klár fyrir átök morgundagsins og strákarnir líka. PACTA Rallyteam
Mynd: www.sunnlenska.is
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undirbúningur fyrir Rally Reykjavík
25.8.2014 | 01:02
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjórir dagar í Rally Reykjavík
24.8.2014 | 10:21
Aðeins fjórir dagar í að fjörið byrji! Rásröð fyrsta dags hér að neðan og svo er endurraðað eftir dag eitt.
- Baldur Haraldsson / Aðalsteinn Símonarson
- Henning Ólafsson / Árni Gunnlaugsson
- Daníel Sigurðarson / Ásta Sigurðardóttir
- Sigurður Bragi Guðmundsson / Björgvin Benediktsson
- Þór Líni Sævarsson / Sigurjón Þór Þrastarson
- Sigvaldi Jónsson / Skafti Skúlason
- Gunnar Karl Jóhannesson / Witek Bogdanski
- Baldur Arnar Hlöðversson / Guðni Freyr Ómarsson
- Sigurður Arnar Pálsson / Brynjar S Guðmundsson
- Gunnlaugur Einar Briem / Jóhannes Jóhannesson
- Kári Sveinsson / Björgvin Hermannsson
- Dali (Örn Ingólfsson) / Óskar Jón Hreinsson
- Heimir Snær Jónsson / Halldór Gunnar Jónsson
- Alan Paramore / TBN
- Marc Paynter / TBN
- Gari Hazelby / TBN
- John Hickinbotham / TBN
- Steve Partridge / TBN
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimm dagar í Rally Reykjavík
23.8.2014 | 17:19
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)