Frábær akstur fyrstu 3.leiðarnar

c_documents_and_settings_user_desktop_sigurdarson01[1]Systkynin Daníel og Ásta náðu ekki að ljúka Bulldog rallinu sem fór fram í Wales í dag.Þau óku útaf á sérleið 4. og bíllinn festist í drullu,þau náðu bílnum ekki inn á veginn fyrr en eftirfarinn kom,skv. reglum þá færðu ekki að halda áfram ef þú hefur notið hjálp eftirfara,þau voru því úr leik.Grátlegt hreinlega eftir frábæran akstur.

Þegar 3.leiðar voru búnar voru þau stödd í 9.sæti og í 4.sæti í Evo meistarakeppninni.Glæsilegur akstur hjá þeim fyrstu 3.leiðarnar.Rall er ekki búið fyrr en það er búið og þau urðu frá að hverfa eins og fyrr segir á leið 4. 

Þau voru að keppa í 5.skipti á þessu ári í Bretlandi.Þau hafa verið að keyra hraðar og hraðar með hverju rall sem hefur liðið,þau sýndu enn og aftur að þau eiga FULLT erindi þarna úti,og stefnan þau systkyni á að keppa að fullu í Bresku meistarakeppninni á næsta ári.Það verður virkilega fróðlegt og gaman að fylgjast með þeim á næsta ári.Áfram Daníel og Ásta.

Viðtal við Danna eftir rallið má inná www.motormynd.blog.is .

c_documents_and_settings_user_desktop_sigurdarson01[1]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband