8 dagar - höldum áfram með kynningu á áhöfnum
14.5.2010 | 20:50
Áfram höldum við að kynna til leiks þá bíla og menn sem munu vera í toppbaráttunni í sumar.
Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson og Heimir Snær Jónsson mæta á MMC Lancer Evo X . Þeir félagar óku Lancer Evo 6 í fyrra en Aðalsteinn var þá að aka í fyrsta skipti í ralli, Heimir er hinsvegar með reyndari aðstoðarökumönnum landsins og einn sá besti.
Bíllinn hjá þeim er ekki enn komin til landsins þegar þetta er skrifað en von er á honum á næstu dögum. Þetta er geysi öflugur bíll og það mun taka smá tíma fyrir þá að ná góðum tökum á honum, reyndar æfðu þeir sig á bílnum í Noregi í Febrúar og það mun klárlega nýtast þeim í sumar. Þeir hafa náð sér í allra bestu þjónustumenn landsins sem munu sjá til þess að bíllinn verði í toppstandi. Það verður virkilega fróðlegt og gaman að fylgjast með þessu liði í sumar og á dögunum opnuðu þeir stórglæsilega heimasíðu www.xrally.is en liðið kallar sig einmitt X rallý keppnisliðið.
Næstu menn eru Marían Sigurðarson og Jón Þór Jónsson.
Þeir mæta til leiks á MMC Lancer Evo 8 í sumar og það verður gaman að fylgjast með þeim. Þeir óku MMC Lancer Evo 5 sumarið 2008 með góðum árangri og enduðu þá í 6 sæti á Íslandsmótinu, voru á tíma í 2 sæti í mótinu en bíllinn fór að gefa eftir þegar leið á sumarið. Marían og Jón hafa mikla reynslu í rallinu og það mun klárlega nýtast þeim í sumar. Bíllinn gullfallegur og sá flottasti sem þeir vinir hafa mætt á. Undirritaður þreytist seint á að hrósa mönnum fyrir útlitið á bílunum sem eru alltaf að verða fleiri og fleiri .
Á sunnudag munu birtast fleiri kynningar af mönnum í toppbaráttunni.
Ásta bleika sæta var í kastljósinu í kvöld. Virkilega flott viðtal við hana og kom rallinu vel á framfæri . Viðtalið á þessum link http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472191/2010/05/14/2 .
Myndir:Efri er af nýja bílnum hjá Alla og Heimi í Noregi í Febrúar. Neðri af bíl Marra og Jónsa á Burnout sýningunni í Kauptúni á dögunum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)