Jón Bjarni og Borgar sigruðu í Skagafirði - umfjöllun

38245_1413294370858_1187516596_31081306_7931186_nJón Bjarni og Borgar á Subaru Imprezu STi juku forskot sitt á Íslandsmótinu með sigri í hinu árlega Skagafjarralli sem fram fór síðastliðin laugardag. Jón og Borgar þurftu ekki að hafa mikið fyrir þessum sigri og þá kannski aðlaga útaf helstu keppinautar þeirra lentu í vandræðum, það skal samt ekki tekið af þeim félögum að þeir óku mjög vel og ef menn ætla að vinna rallkeppni hér á landi þessa vikurnar eru þeir mennirnir sem þarf að vinna. Þetta er sjöunda rallkeppnin í röð sem Jón Bjarni sigrar.

Í 2 sæti lentu þeir Sigurður Bragi og Ísak á MMC Lancer Evo 7. Þeir óku ágætlega en Sigurður hafið ekkert ekið rallbíl í heilt ár. Þeir lendu í brasi með gírkassa fyrir keppnina og það var að hrjá þá í rallinu. Þeir fengu eignin stig í Íslandsmótinu þar sem þeir voru í flokki X.

39680_1413290450760_1187516596_31081261_4142578_nHilmar Bragi og Stefán óku vel alla keppnina og lentu í 3 sæti. Þeir eru eina áhöfnin eins og er sem ógnar Jón Bjarna og það lýtur út fyrir mikinn slaga milli þessa tveggja áhafna í Rallý Reykjavík um miðjan ágúst. Þá er vonandi að Hilmar verði búin að finna útúr afleysi síns bíls því það sátt vel um helgina að það vantar mikið uppá afl í bíl hans. Engu að síður er hann að koma honum hratt áfram og það er vel gert.

Í 4 sæti urðu Fylkir og Elvar. Þessi bíll á að fara mun hraðar yfir en raunin varð um helgina en vel gert að klára og ná í punkta í mótinu.  Marían og Jón Þór lentu í fimmta sæti. Þetta var kannski ekki þeirra rall tímalega séð en þeir aka alltaf af skynsemi og klára nánast öll röll. Þeirra bíll er ekki eins öflugur á hinna í toppbaráttunni.

Nýliðarnir38964_1413299530987_1187516596_31081364_480355_n Einar og Símon gerðu vel að klára sína fyrstu keppni og enduðu í 6 sæti. þeir óku af skynsemi og fengu mikla reynslu útúr þessu ralli. Það gekk brösuglega í fyrstu tveim mótunum en núna gekk allt upp og vel gert að klára fjórar ferðir um Mælifellsdal en þar hafa margir nýliðar magalent ef svo má segja.

Sighvatur og Andrés enduðu í 7 sæti og sigruðu jafnframt jeppaflokkinn. Alltaf gaman að sjá Hvata þeytast um rallývegina og hann hefur enn jafn mikið gaman af þessu sporti og þegar hann byrjaði fyrir MÖRGUM árum Smile.  Kristinn og Brimrún enduðu í 8 sæti og í 2 sæti í jeppaflokknum vel gert. 

Í 2000 flokknum voru það Kristján og Halldór sem sigruðu og lendu þeir í 9 sæti í heildarkeppninni. Henning og Árni lentu 10 sæti og í því 2 í 2000 flokknum.

39780_1413298170953_1187516596_31081351_226373_nFeðgarnir Hlöðver og Baldur voru með mikla yfirburði í 2000 flokki en á leið 2 um Mælifellsdal dó á bílnum og þeir töpuðu 14 mínútum á því ævintýri. Sem betur fer komst bíllinn í gang með góðri hjálp áhorfenda Smile. Til marks um þá yfirburði sem þeir höfðu á hina tvo bílana í 2000 flokki þá tóku þeir heila mínútu í hverri ferð í hinum þrem ferðunum um dalinn.  Hlöðver fær engu að síður 10 stig fyrir þessa keppni því báðir ökumennirnir voru með svokallað dagsskýrteini, þ.a. þeir sem voru í 1 og 2 sæti í flokknum og telja því ekki stig í mótinu.

Lokstaðan i keppninni hér http://tryggvi.org/rallytimes/?RRComp=11?RRtcno=4?RRAction=6 .

Bílaklúbbur Skagafjarðar á hrós skilið fyrir að hafa haldið þessa keppni og allt var til fyrirmyndar hjá þeim eins og vanalega.  Næsta rall fer fram 12 til 14 ágúst en það er Rallý Reykjavík www.rallyreykjavik.net .

ÁFRAM RALLÝ.

Heiður af þessum myndum með greininni á Þórður Bragason.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1 skemtilegasta rally sem ég hef keft í og þakka hjálpina Dóri hemmir, valdi,gummi takk takk ;D kv Baldur og Hlölli ;D

Baldur Hlöðversson (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 15:16

2 identicon

Takk Dóri fyrir flottar og góðar greinar þetta er eina síðan þar sem sagt er frá rallinu.

Mundu bara þú ert frábær

kv Boggi

Borgar Ólafsson (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 19:23

3 identicon

flott gein hjá þer Dóri...... þetta var mjög svo skondið rall..... ótrúlegar bilanir og óvæntir hlutir gerðust hjá okkur Bjössa, og við vorum ánægðir að klára tæpum 16.min á eftir næstsíðustu áhöfn...hehehehehe  þannig að núna er eg með það skjalfest á blaði.....að botninum er náð og íslandsmeistaratitill úr augnsýn..... þannig að þá er bara full ferð að vanda og taka Þessa stráka mæst...;-)

petur (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 00:52

4 Smámynd: Heimir og Halldór Jónssynir

Takk fyrir strákar , maður reynir eins og maður getur að fjalla um sportið okkar ...

Það var lítið Baldur minn , gott að geta hjálpað vinum sínum inná sérleið og nú er bara að klára mótið með stæl.

Heimir og Halldór Jónssynir, 30.7.2010 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband