Fyrsti sigur Snæfells
28.10.2007 | 23:41
Strákarnir úr Stykkishólmi unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu,þegar Stjörnumenn komu í heimsókn,lokatölur 101-86.Justin Shouse skoraði 25.stig fyrir heimamenn og var með 9.stoð,hjá Stjörnunni var Muhamed Taci með 30.stig.
Á Akureyri unnu KR-ingar sigur á Þórsurum 91-100.Ég veit ekki alveg hvað var í gangi í þessum leik því það voru dæmdar 60.villur.Hjá KR var Darri Hilmarsson stigahæstur með 25.stig,en hjá Þór var Cedric Isom með 30.stig og 9.fráköst.
Í Njarðvík töpuðu heimamenn fyrir grönnum sínum í Keflavík 63-78.Það er örugglega langt síðan að Njarðvík hefur skorað eins lítið á heimavelli.Stigahæstur hjá Njarðvík var Brenton Birmingham með 15.stig og Friðrik Stefánsson var með 14.stig og 13.fráköst.Bobby Walker og Tommy Johnson voru með 18.stig hvor fyrir Keflavík.
Í Grafarvogi unnu Tindastólsmenn sigur á Fjölni 91-94.Stólarnir hafa byrjað vel og unnið 3.leiki af 4.Hjá Fjölni var Drago Pavlovic stigahæstur með 26.stig,hjá stólunum voru Marcin Konarzewski og Donald Brown stigahæstir með 20.stig hvor.
Betri tölfræði er hægt að finna inn á www.kki.is undir Leikvarp,til vinstri á forsíðunni.
Mynd www.karfan.is .Snorri Örn.
Keflavík vann Suðurnesjaslaginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.