Loeb heimsmeistari 5.árið í röð
2.11.2008 | 11:00
Frakkinn Sebastien Loeb varð í morgun heimsmeistari í rallakstri 5.árið í röð,hann skráði sig í sögubækurnar því engum hefur tekist að vera meistari 5.ár í röð og þetta er auðvita alveg fáránlegur árangur hjá manninum.
Finninn Mikko Hirvonen sigraði í Japansrallinu sem lauk í morgun en hann hefur háð mikla baráttu við Loeb á þessu tímabili.
Landi Hirvonen og liðsfélagi Jari-Matti Latvala varð annar í keppninni og hann endaði 31 sekúndu á eftir landa sínum.
Loeb hefur unnið 10 mót á þessu keppnistímabili og Hirvonen 3 og Latvala 1.
Síðasta keppnin fer fram í Bretlandi í byrjun Desember.
Lokstaðan í Japansrallinu
1. | 3 | Mikko HIRVONEN | 3:25:03.0 | 0.0 |
2. | 4 | Jari-matti LATVALA | 3:25:34.1 | +31.1 |
3. | 1 | Sebastien LOEB | 3:27:33.6 | +2:30.6 |
4. | 6 | Chris ATKINSON | 3:28:45.4 | +3:42.4 |
5. | 12 | Per-gunnar ANDERSSON | 3:30:15.9 | +5:12.9 |
6. | 11 | Toni GARDEMEISTER | 3:31:12.4 | +6:09.4 |
7. | 8 | Matthew WILSON | 3:32:08.3 | +7:05.3 |
8. | 5 | Petter SOLBERG | 3:38:22.9 | +13:19.9 |
Athugasemdir
hvað er málið með þennann frakka, hann er invincible
Eyjólfur Daníel Jóhannsson, 2.11.2008 kl. 22:21
já hann er pínu góður að keyra rallýbíl..
Heimir og Halldór Jónssynir, 2.11.2008 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.