Ný vefsíða opnuð í rallinu
5.5.2009 | 22:50
Ný glæsileg vefsíða hefur verið opnuð í rallinu og það eru keppendurnir Halldór Vilberg og Ragnar sem hafa opnað þessa síðu.
Tengill inn á þessa glæsilegu síðu hér www.rally.hradi.is .
Bíllinn sem þeir félagar aka í sumar er Toyota Corolla 1600 með framdrifi en þetta er bíllinn sem Pétur og Heimir óku 2007 með frábærum árangri og urðu meistara í 1600 og 2000 flokki, þetta var TAKK corollan í fyrra.
Halldór og Ragnar eru báðir nýliðar í rallinu og verður gaman að sjá hvað þeir gera í sumar en báðir hafa þeir starfað við margar mótorsports keppnir og komin tími á vera keppandi.
Halldór Vilberg var mjög öflugur að taka upp vídeó af röllunum í fyrra og voru þau myndbönd mjög flott! hjá honum og nú verður einhver annar að taka það að sér:).
Mynd: Bíllinn sem þeir munu aka í sumar en þessi mynd er tekin af Pétri og Heimi 2007.
Athugasemdir
Takk fyrir þessa (ó)verðskulduðu umfjöllun.
Reyndar var að koma upp sú staða að Ragnar getur líklega ekki verið með í fyrstu keppni. Hann fer í smá aðgerð fljótlega og það er spurning hvort hann verði búinn að ná sér að fullu.
En ég og KC-868 mætum galvaskir þegar við höfum náð að planta einhverjum í hægra sætið
Halldór Vilberg Ómarsson, 5.5.2009 kl. 23:01
Flott síða hjá ykkur :)
ps. Klossarnir eru komnir til pabba :D
Team Yellow, 5.5.2009 kl. 23:41
Það var nú bara mög lítið nafni. Vonandi nærðu að plata einhvern í hægra sætið í stað Ragnars...
Kveðja / HGJ
Halldór Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 07:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.