Færsluflokkur: Bílar og akstur

Gamlar & góðar myndir

Ég var að klára myndaalbúmið gamlar og góðar www.ehrally.blog.is/album/GamlarogGodar og þetta eru ekki nema 160 myndirSmile,það er óhætt að segja að þetta séu gamlar myndir því elstu myndirnar eru frá árinu 1977( ég var ekki einu sinni fæddur þáSmile ),ég fékk flestar af þessum eldri myndum hjá Dodda frænda,endilega að kíkja á þetta stórskemmtilega albúm njótið vel.

Haustrall 1989 .Lyngdalsheiði.Doddi og Pabbi

Mynd: Doddi og Pabbi heitin á Lyngdalsheiði í haustralli 1989.


Nýtt útlit á bílum

Það er virkilega gaman að sjá hvað menn eru með mikinn metnað í rallinu að gera bíla sýna flotta,það var greinilegt í fyrsta rallinu að menn hafa pælt í útlitinu á bílunum í vetur en auðvita skiptir útlitið máli á bílunum,nokkrir bílar fengu ný og flott útlit og einnig eru nýju bílarnir flottir.

Hér að neðan sýni ég myndir af þrem bílum sem fengu ný útlit í vetur og ég leyfi mér að segja að þetta eru flottustu rallýbílarnir í dag.

Bíll Péturs og Heimis Lancer Evo 6.

2007                                                                                2008Pétur & Heimir - 2008                      Danni & Ásta - 2007

 

 

 

 

 

Bíll bræðranna Gunnars & Jóhanns Ford Focus.

2007Focus - 2007                                                                               2008Gunnar & Jóhann - 2008                                                            

 

 

 

 

 

Bíll Valda & Inga Subaru Impreza.

2007Fylkir & Elvar - 2007                                                                               2008Valdi & Ingi - 2008                                                          

 

 

 

 

 

Allar þessar myndir eru teknar af síðu Gulla Briem  http://gullibriem.blog.is  nema ein þá mynd tók JAK af bíl Péturs og Heimis.


Myndir & vídeó frá rallinu

Myndir og vídeó eru farinn að detta inná netið af fyrsta rallinu sem var um síðustu helgi.

Pétur & Heimir á Djúpavatni

Þær síður þar sem myndir eru komnar inn.

www.gullibriem.blog.is

www.flickr.com/photos/elvarorn

www.rally.blog.is

www.motorsportklippur.net  (vídeó)

1.rally-20081.rally-2008

 

 

 

 

 

Myndir: www.gullibriem.blog.is  og  www.rally.blog.is .


Frábær byrjun á tímabilinu

1.rally 2008 108Fyrsta umferðin á Íslandsmótinu í rallakstri lauk í gær,nítján áhafnir hófu keppni en fjórtán komust í endamark.

Það er óhætt að segja að ralltímabilið byrji frábærlega og það stefnir í gríðarlega skemmtilegt sumar,fyrir rallið var búið að spá Sigga Braga & Ísak og Jóni & Borgari fyrstu tveimur sætunum og að þeir myndu slást um þessi tvö sæti og það kom á daginn til að byrja með,hinsvegar var ekki búist við að þeir fengju harða keppni enda voru margir að keyra fjórhjóladrifsgræjur í fyrsta skipti,en þeir fengu nú samt töluverða keppni þrátt fyrir að nokkrar áhafnir eins og áður sagði hafi verið að læra inná sína græjur og eiga eftir að læra enn meir því þú nærð ekki fullum tökum á svona græjum fyrr en eftir 3/4 röll.

Jón & Borgar voru með forustuna eftir fyrsta dag en strax á fyrstu tveimur leiðunum á degi 2 voru þeir farnir að gefa eftir og þeir féllu úr leik með bilaðan drifbúnað á sérleið 7.Páll og Aðalsteinn veltu á sérleið 6 á nýja fína Subaru þeir náðu reyndar að klára leiðin en þurftu að hætta keppni því framrúðan var það mikið brotin.

Mínir drengir Pétur & Heimir náðu 2.sætinu sem er auðvita frábær árangur,þeir voru að aka bílnum í fyrsta skipti í keppni og það var tekin ákvörðun um að læra á bílinn og keyra sitt rallý,þrátt fyrir þetta öruggan akstur hjá þeim þá náðu þeir þrisvar besta tíma á sérleið sem er auðvita mjög gott.Bíllinn var að reynast mjög vel og þeir eru gríðarlega ánægðir með bílinn og ekkert kom uppá í rallinu og það er ekki ein rispa á bílnum.

Henning og Gylfi sigruðu 1600 og 2000 flokkinn frábær árangur það,og Guðmundur og Ingimar unnu jeppaflokkinn.

Sérleiðatímar Péturs og Heimis.

Leið 1. 01:00 - 4 besti

Leið 2. 00:57 - besti tími

Leið 3 19:39 - 3 besti

Leið 4 03:32 - 3 besti

Leið 5 03:03 - besti tími

Leið 6 07:15 - 3 besti

Leið 7 07:38 - 3 besti

Leið 8 07:15 - 3 besti

Leið 9 07:31 - 2 besti

Leið 10 03:06 besti tími.

Þrisvar besti tími.

Einu sinnu annar besti.

fimm sinnum þriðji besti.

Einu sinni fjórði besti.

Lokastaðan í rallinu

1. Sigurður Bragi og Ísak 59:06
2. Pétur og Heimir 01:00:56
3. Marian og Jón Þór 01:03:00
4. Jóhannes og Björgvin 01:05:28
5. Fylkir og Elvar 01:07:33
6. Sigurður Óli og Hrefna 01:07:57
7. Valdimar og Ingi 01:08:03
8. Henning og Gylfi 01:10:50
9. Guðmundur og Ingimar 01:12:13
10. Kjartan og Óli Þór 01:13:08
11. Ólafur og Sigurður 01:13:36
12. Reynir og TBN 01:15:06
13. Ásta og Steinunn 01:18:09
14. Gunnar og Hafsteinn 01:20:13.

Mynd: Pétur og Heimir með verðlaunin sín og sáttir við 2.sætið.


mbl.is Sigurður Bragi og Ísak unnu vorrallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnur Lancer fyrsta rallý sumarsins fjórða árið í röð.

Evo

Ég tók saman hverjir hafa verið að vinna fyrstu keppni sumarsins síðustu ár og fór ég tíu ár aftur í tíman,ef Lancer vinnur um helgina þá yrði það fjórða árið í röð sem Lancer vinnur fyrstu keppni sumarsins.Sigurður Bragi og Ísak unnu fyrsta rallý sumarsins 2005 á Lancer Evo 5 og Daníel og Ásta unnu 2006 og 2007 á Lancer Evo 6.

Keppnin um helgina verður mjög spennandi og slagurinn verður án efa mikil.

Sigurvegarar síðustu tíu ára.

2007 - Daníel og Ásta - MMC Lancer Evo 6

2006 - Daníel og Ásta - MMC Lancer Evo 6

2005 - Sigurður Bragi og Ísak - MMC Lancer Evo 5

2004 - Sigurður Bragi og Ísak - Ford Focus VRC

2003 - Rúnar og Baldur Jónssynir - Subaru Legacy

2002 - Rúnar og Baldur Jónssynir - Subaru Legacy

2001- Rúnar og Jón Ragnarson - Subaru Impreza

2000 - Rúnar og Jón Ragnarson - Subaru Impreza

1999 - Rúnar og Jón Ragnarson - Subaru Legacy

1998 - Sigurður Bragi og Rögvaldur - Metro .

Upplýsingar um rallið sem byrjar á morgun  http://l2c.dori.ath.cx/tm.pdf  .


Spá fyrir fyrstu keppni

Jæja núna eru ekki nema fimm dagar í að Íslandsmótið í rallakstri byrji og spennan er farin að magnast hjá liðunum,eftir því sem ég best veit eru 19.áhafnir skráðar til leiks.

Ég ætla að setja upp mína spá fyrir þessa fyrstu keppni sem hefst næst komandi föstudag,ég set þá sem lenda í stiga sætum eða topp 8.

1.Jón Bjarni & Borgar,ég spái þeim félögum fyrsta sæti og ef það gengur eftir yrði það í fyrsta skipti sem þeir vinna rallý yfir heildina og kannski er komin tími á það,það verður mikil pressa á þeim félögum að ná góðu gengi í sumar enda eru þeir komnir með mikla reynslu og hafa lent í öðru sæti á Íslandsmótinu tvö undanfarin ár,þeir eru á sínu þriðja ári saman og á sínu öðru ári á 4x4 turbo bíl og árið 2006 urðu þeir meistarar í 2000 flokki,Jónbi hafði áður ekið fjórhjóladrifs Ford Escort og varð Íslandsmeistari í 1600 flokki 1998 á Toyotu 1600.Bíllinn sem þeir keppa á í sumar er Lancer Evo 7 gríðarlega öflugur bíll.

2.Sigurður Bragi & Ísak,já ég spái þeim öðru sætinu í þessari fyrstu keppni eftir mikinn slag við Jón & Borgar,Siggi & Ísak eru með mjög mikla reynslu úr rallinu og pottþétt þá mestu yfir þá sem eru að keppa í dag,þeir eru á hefja sitt sjötta ár saman í ralli en báðir hafa ekið mun lengur en það,þeir urðu Íslandsmeistara árið 2005 sem er eini titill þeirra yfir heildina,þeir hafa báðir keppt í toppbaráttunni nú í áratug og auðvita hjálpar það mikið,það fer kannski að há Sigurði Braga að kallinn er nú ekki með þeim engstu í rallinu en hann verður engu að síður mjög hraður í sumar og mun vinna einhver röll en það verður ekki í þessari keppni.Þeir aka Lancer Evo 7.

3.Valdimar & Ingi,Valdi er sennilega með efnilegri rallökumönnum okkar í dag og hann sýnti það í fyrra að hann getur verið mjög hraður en það vantar kannski aðeins meiri skynsemi hjá stráknum,Valdi & Ingi eru að byrja sitt annað ár saman en í fyrra óku þeir fjórhjóladrifsbíl sem var reyndar ekki eins öflugur aðrir í toppbaráttunni en sýndu engu að síður flotta tíma inná milli,núna eru þeir komnir á mun öflugri bíl og með betri fjöðrun,það sem þeir þurfa að gera er að skoða sérleiðarnar vel og undirbúa sig betur en þeir gerðu stundum í fyrra ef þeir undirbúa sig vel þá ná þeir góðum árangri.Bíllinn sem þeir aka er Subaru Impreza.

4.Jóhannes Gunnarsson,hann verður með nýjan aðstoðarökumann sem ég veit ekki hver er og því miður er ekki með nafnið á honum,Linda kona Jóa hefur verið hans aðstoðarökumaður en þau eiga vona á barni nú á næstu dögum,Jói hefur ekið Lancer Evo 5 síðustu ár en ekki tekið þátt í öllum mótum,þessi Evo 5 bíll er ekki með nægilega gott fjörðunarkerfi ef er miðað við aðra bíla í toppbaráttunni og það hefur háð Jóa þó nokkuð,hann verður nú á nýjum bíl Lancer Evo 7(bíll sem Danni keppti á í Bretlandi í fyrra)þessi bíll er mun betri en Evo fimman og tímarnir ættu batna mikið hjá Jóa í sumar.

5.Pétur & Heimir,þeir eru að keppa í toppbaráttu í fyrsta skipti og það er soltið að gleymast í umræðunni síðustu dag,þeir náðu frábærum árangri í fyrra í 1600 og 2000 flokki og urðu meistarar í báðum flokkum,en núna eru þeir á fjórhjóladrifsbíl með mun fleiri hestöfl og það tekur tíma að læra inná svona græjur og hröðunin er mikil fyrir þá svo það er mikið að læra fyrir mína drengi,þeirra metnaður er mikil og þeir leggja mikla vinnu í bílinn og undirbúning fyrir hverja keppni og það á eftir að hjálpa þeim,en við skulum gefa þeim 3/4 röll að ná tökum á þessu.Bíllinn sem þeir aka er Lancer Evo 6.

6.Marían & Jón Þór,þeir kepptu í einni keppni á Focus í fyrra en þeir óku fyrir nokkrum árum á Sukkunni,þeir munu keppa á Lancer Evo 5(bíllinn sem Jói átti),Jón Þór þekkir það vel að að keppa á þessum bíl enn hann var aðstoðarökumaður hjá Hjörleifi árið 2001,Marína er bróðir Danna og Ástu Íslandsmeistara síðust tveggja ára,þeir verða ekki langt á eftir bestu tímunum og þeir eiga eftir að koma á óvart.Bíllinn sem þeir aka er Lancer Evo 5.

7.Sigurður Óli,hann verður líka með nýjan aðstoðarökumann eins og litli bróðir,Elsa Kristín dóttir Sigga óla hefur verður aðstoðarökumaður hjá pabba gamla en hún á von á barni og verður því ekki með í fyrstu keppnunum,Siggi byrjaði í rallakstri 1997 (held ég) og var oft nefndur Siggi síðasti en það er ekki lengur,síðustu ár hefur hann verið framarlega í keppnum og hann keyrir ALLTAF af öryggi,hann líka þekktur fyrir að klára ALLAR keppnir og hefur aðeins einu sinni dottið úr keppni sem var fyrir nokkrum árum.Bíllinn sem hann ekur er Toyota Celica Gt 4.

8.Gunnar & Jóhann Hafsteins bræður,þeir óku Suzuki Swift í fyrra með fínum árangri,þeir festu kaup á Ford Focus í vetur en þetta er bíllinn sem Jónbi og Boggi urðu meistarar á 2006 í 2000 flokki,þeir verða sennilega soltið að keppa við sjálfan í sumar en 1600 bílarnir munu kannski slást eitthvað við þá bræður,það mun hjálpa þeim bræðrum að þeir eru SkagamennSmile.Bíllinn sem þeir aka er Ford Focus 2000.

Til að fá upplýsingar um rallið klikkið hér http://l2c.dori.ath.cx/tm.pdf  .

Jóhannes Gunnarsson

Jói

Jónbi & Boggi

Jónbi-Boggi

Valdi & Ingi

Valdi-Ingi

Pétur & Heimir

Pétur-Heimir

Myndir: Margeir www.kappakstur.com .


Strákarnir skynsamir á fyrsta degi

Danni-Ísak.uk-2008Danni og Ísak hafa lokið 5.sérleiðum í Manx rallinu sem fram fer á eyjunni Mön á Írlandshafi nú um helgina,allar sérleiðarnar í þessari keppni eru á malbiki og leiðarnar sem drengirnir óku í kvöld voru eknar í svarta myrkri.

Þeir eru staddir í 42.sæti af 104 bílum sem enn eru með í keppninni og þeir eru í 14.sæti í Evo flokknum,14 bílar hafa þegar fallið úr leik og verða þeir enn fleiri á morgun,strákarnir óku alveg eftir planinu í kvöld sem var að aka af skynsemi,þeir munu auka eitthvað við hraðan á morgun en skynsemin verður áfram í fyrir rúmi og þegar þeir klára rallið á morgun verða þeir verðlaunaðir fyrir skynsemina.

Hægt er að fylgjast með rallinu hér  www.manxrally.org  .

Ég sendi strákunum baráttukveðjur,áfram Ísland.

Skemmtilegt video af ralli síðan árið 1985 en það ár fæddist Heimir bróðirSmile .


Bílar & Sport sýningin

Evo 6-2008

Bílar & Sport sýningin hófst í dag í Fífunni og mun sýningin standa fram á sunnudag,þetta er stærsta bíla & mótorsport sýning sem haldin hefur verið hér á landi.

Ég vil hvetja fólk til að fara niðrí Fífu um helgina og kíkja á þessa frábæru sýningu,nokkrir rallýbílar eru á sýningunni og þar er að finna fjóra fjórhjóladrifsbíla og allir hver öðrum flottari,mikil vinna hefur verið lögð í nokkra rallýbílana í vetur og gaman er að sjá hvað metnaðurinn er orðin mikil hjá mönnum í að hafa bílana snyrtilega og flotta,ég leyfi mér að segja að bílaflotinn hefur aldrei verið eins flottur og hann er nú í rallinu.

Svo vil ég benda fólki á nýja heimasíðu hjá Kjartani og Óla www.kappakstur.com ,virkilega flott síða hjá þeim en þeir munu keppa á bílnum sem Pétur og Heimir voru á í fyrra,það verður gaman að fylgjast með þeim en þeir eru nýliðar í rallinu.

Myndir.Bíllinn hjá Pétri og Heimi hefur tekið gríðarlegum breytingum í vetur og er orðin gullfallegur.

Bíllinn hjá Pétri & Heimi


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband