Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Valsmótið byrjar á morgun
31.8.2007 | 17:05
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jakob hetja mögnuð sigurkarfa
29.8.2007 | 22:45
Ævintýraleg sigurkarfa Jakobs tryggði Íslendingum sigur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 30.8.2007 kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
NBA leikmaður mætir í Laugardalshöll
29.8.2007 | 13:45
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Georgíu í kvöld kl.19:15 í b-deild Evrópukeppninnar.Stærsta sjarna Georgíu er Zaza Pachulia en hann er leikmaður Atlanta Hawks í NBA-deildinni.Þetta verður erfiður leikur fyrir okkar menn og þeir þurfa að ná toppleik til að vinna og ég held að þeir geri það,Ísland vinnur 86-81,Logi og Páll Axel verða heitir og Frikki Stef og Fannar binda vörnina saman.Allir að fjölmenna í höllina í kvöld og sjá skemmtilegan körfubolta.Nánari fréttir um þennan leik inná www.kki.is og www.karfan.is einnig er skemmtilegt viðtal við Hlyn Bærings þar sem hann talar um Zaza Pachulia besta mann Georgíu viðtalið má finna hér www.visir.is/article/20070829/IDROTTIR03/108290115/-1/IDROTTIR
Mæta besta miðherja í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinnum tvo bikara á þessu tímabili
29.8.2007 | 01:41
Þetta var góður sigur hjá mínum mönnum,en andstæðingurinn var nú mjög slappur,ég held að þetta verði okkar tímabil og við vinnum allavega tvo bikara,það er langt síðan ég hef séð Liverpool svona sterkt í upphaf tímabils.Það verður gaman að sjá hvaða lið verða með Liverpool í riðli í meistaradeildinni en dregið verður í riðla á fimmtudag.
Benítez: Sýndum hvað liðið er sterkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skeljungur og KKÍ skrifuðu undir stóran samninginn
28.8.2007 | 22:25
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alþjóðarallið myndir
26.8.2007 | 21:45
Það eru komnar fullt af myndum úr alþjóðarallinu í myndaalbúmið,en þær eiga eftir að vera mun fleiri á næstu dögum,myndir af öðrum keppendum eiga eftir að koma inn,og fleiri af mér og Eyjó,einnig eru komnar margar myndir inná aðrar síður og set ég tengla á þær síður hér að neðan,njótið vel.
www.flickr.com/photos/elvarorn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mbl.is getur gert betur en þetta
25.8.2007 | 22:32
Tap fyrir Finnum ytra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alonso vinnur þetta mót
25.8.2007 | 19:05
Ég gæti alveg trúað því að Alonso vinni þessa keppni á morgun,keppnin verður mjög spenandi og slagurinn verður rosalegur milli Ferrari og McLaren,mín spá á morgun fyrstu 8 sætin.
1.Alonso-McLaren
2.Massa-Ferrari
3.Hamilton-McLaren
4.Räikkönen-Ferrari
5.Heidfeld-BMW
6.Rosberg-Williams
7.Trulli-Toyota
8.Kubica-BMW.
Alonso segist geta sigrað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
RÚV að gera góða hluti
25.8.2007 | 01:26
Í dag laugardag mun karlalandsliðið okkar mæta Finnum ytra í B-deild Evrópukeppninnar í körfubolta.Leikurinn hefts kl.15:00 og verður honum sjónvarpað beint á RÚV,þetta er í fyrsta sinn sem er sjónvarpað beint frá landsleik í körfubolta af erlendri grundu,ég er gríðarlega ánægður með þetta hjá RÚV og eiga þeir hrós skilið gott að þeir sjá að körfuboltinn á Íslandi er í gríðarlegri sókn.Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands á líka mikið hrós skilið,en í næstu viku verður kynntur nýr samstarfsaðili og mun hann koma að landsliðsstarfi sambandsins,alveg greinilegt að það eru bjartir tímar framundan í íslenskum körfuknattleik.En allir að stilla á RÚV kl.15:00 í dag og sjá góðan og skemmtilega körfubolta.
Kíkið á frétt inná www.kki.is eftir formann KKÍ og www.hannesjonsson.blog.is
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stöndum Saman bloggarar og nýtum miðilinn
23.8.2007 | 21:11
Tekið af blogginu hennar Heiðu(www.skessa.blog.is) og vil með því leggja mitt af mörkum til þess að nauðgunarlyf verði ekki til á markaði hér.
Eins og nokkur ykkar hafa kannski tekið eftir, hef ég verið að kynna mér svefnlyfið Flunitrazepam undanfarið. Flunitrazepam er sama lyf og Rohypnol, engu breytt nema nafninu, og hefur verið þekkt sem nauðgunarlyf í mörg ár. Ég hef leitað eftir svörum og almennum upplýsingum um lyfið undanfarið og niðurstöðurnar eru sláandi.
Þetta tiltekna svefnlyf hefur enga sérstöðu sem er til bóta fyrir þá sjúklinga sem þurfa á svefnlyfi að halda. Á markaðnum eru tugir svefnlyfja sem gagnast sjúklingum alveg jafn vel og sem ekki hafa þá "kosti" sem nauðgarar sækjast í, þ.e. minnisleysi og almennt rænuleysi til að veita nauðgara mótspyrnu.
Augljósasti kostur lyfsins er að sjálfsögðu sá að nauðgarar geta verið nokkuð vissir um að fórnarlambinu er nánast ómögulegt að kæra eða framfylgja kæru vegna þessa minnisleysis. Lyfið er stundum notað við dáleyðslu vegna þess að það er nánast hægt að fá fólk til að gera hvað sem er undir áhrifum þess.
Hérna koma linkar á fyrri skrif mín um lyfið og svör Landlæknis. En óvísindaleg könnun mín á því hversu algengt það er að lyfinu sé laumað í drykki kvenna á skemmtistöðum borgarinnar kom mér á óvart.. þrátt fyrir að ég hafi verið nokkuð viss um að þetta sé miklu algengara en fólki grunar svona almennt.
Rohypnol 1
Sem konu og móðir tveggja dætra er mér mikið í mun að þessum óþverra sé hent út af lyfjaskrá hér á landi. Á árinu 2006 var rúmlega 11.000 skömmtum ávísað af lyfinu. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Lyfjastofnunnar er best að koma svona málum á framfæri til Lyfjastofnunar, sem síðan leggur þau fyrir Lyfjanefnd.
Læt fylgja póstinn sem ég sendi í dag á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is
Ég vona að sem flestir láti heyra frá sér, karlmenn og konur. Því fleiri sem senda þeim beiðni/kröfu um að lyfið sé tekið af skrá því betra!
Lyfjastofnun Ríkisins
Svefnlyfið Flunitrazepam hefur enga jákvæða virkni fyrir þá sjúklinga sem neyta þess fram yfir þá tugi annara svefnlyfja sem eru á lyfjaskrá.
Virka efnið í lyfinu hefur þó þau neikvæðu áhrif að af því skapast algjört minnisleysi og getuleysi til að greina umhverfi sitt. Þessi atriði hafa valdið því að lyfið hefur þann vafasama heiður að vera þekkt sem "nauðgunarlyf" (Date-Rape). Lengi hefur tíðkast, hér á landi sem annars staðar, að lauma því í drykki kvenfólks til að ná fram áðurnefndu minnis- og getuleysi og ef allt fer samkvæmt áætlun fylgir nauðgun í kjölfarið. Það er nánast ógerlegt fyrir fórnarlamb þessa að kæra til lögreglu sökum minnisleysis.
Árið 2006 var Flunitazepam ávísað í ríflega 11.000 skömmtum. Þar sem lyfið hefur enga sérstöðu til bóta fyrir þá sjúklinga sem nota það fer ég þess á leit að Flunitrazepam verði tekið af lyfjaskrá hér á landi hið snarasta.
Öryggi stúlkna/kvenna hlýtur að vega þyngra en svo að nauðsyn teljist til að hafa þetta hættulega lyf í umferð
Virðingafyllst.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)